Við erum hér
Staðsetning

Heilsuráðstefnan Healing the Healers

Við notum og seljum vörur frá
Forever living products

Aloe vera

Heilsuvörur
Heilsunudd
Snyrting
Vatnsmeðferð
Sérstök hóptilboð

Velkomin á heimasíðu Heilsu og hamingjulindarinnar.

Næsta Shamballa sjálfseflingar námskeið hefst 19.apríl Skráning er hafin

Nú erum við búin að fá parafin tæki fyrir handsnyrtinguna. Verið velkomin.

Hamingja okkar er nátengd heilsu og innri líðan. Fyrir marga hefur útlitið veruleg áhrif á líðan enda hafa rannsóknir sýnt að blóðþrýstingur er lægri hjá konum eftir ferð á snyrti eða hárgreiðslustofu en fyrir. Aðrir leita slökunar og safna orku með því að fara í Spa meðferðir og láta dekra við sig á ýmsan hátt.

Við lítum ávallt til bæði hugar og líkama. Þannig vinnum við með líkama og sál sem eina heild til hjálpar sérhverjum einstaklingi. Lilja skoðar jafnframt lífstíl og annað sem áhrif hefur á líkamlega og andlega líðan og bendir á leiðir til úrbóta.

Við bjóðum upp á heilsu nudd, snyrtingu, höfuðbeina og spjaldhryggsjöfnun, heilsuráðgjöf og spameðferðir, námskeið auk annarra úrræða til heilbrigðis líkama og sálar.

Nú eru einnig í boði tímar sem kallast Bland í poka þar sem Lilja og Elli leiða saman þekkingu sína. Meðferðin tekur 90 mínútur og er sambland af nuddi, hbs jöfnun, samtalsmeðferð, miðlun, kristöllum og heilun allt eftir því hvað hentar hverjum og einum. Magnaðir tímar sem velta upp djúpt liggjandi áföllum og heilsufarsvandamálum.

Tekið er við pöntunum í síma 699 0858 (Lilja), 692 0858 (Elli) og 868 0844 (Ágústa).

Einnig er hægt að senda okkur tölvupóst, munið að senda símanúmerið ykkar með. liljaogelli(hja)internet.is eða agusta_angel69(hja)hotmail.com

 
Frontpage Slideshow (version 2.0.0) - Copyright © 2006-2008 by JoomlaWorks